Tengsl við námsgreinar
Hægt er að tengja gróðursetningu á plöntum frá Yrkju við ýmsar námsgreinar, með umræðum eða heimildavinnu í undirbúningi fyrir gróðursetningu eða eftir gróðursetningu.
Erlend tungumál.
- Lestur bóka, greina og vefsíðna um gróður, skóga og skógrækt. Sjá t.d.:
Heimilisfræði.
- Afurðir skóga sem nýttar eru til matargerðar – sveppir, kryddjurtir, ávextir o.fl.
- Afurðir skóga nýttar í gerð áhalda – t.d. trésleif vs. plastsleif.
- Endurnýting og endurvinnsla.
Íslenska.
- Lestur bóka, greina og vefsíðna um gróður, skóga og skógrækt. Sjá t.d.
Íþróttir, líkams- og heilsurækt.
- Gildi skóga fyrir útiveru og hreyfingu – útivistarmöguleikar í skógi (ganga, hlaup, hjólreiðar, skíði o.fl.).
- Gildi skóga fyrir lýðheilsu – jákvæð áhrif á heilsu.
Kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði.
- Ýmis siðferðileg gildi og álitamál sem tengjast skógrækt, skógareyðingu og nýtingu manna á auðlindinni.
- Ábyrgð og skyldur gagnvart öðrum einstaklingum í samfélaginu og umhverfinu.
- Tré og skógar í trúarbrögðum – t.d. Tré lífsins, Yggdrasill.
Listgreinar. Myndlist, textílmennt, tónmennt, leikræn tjáning og dans.
- Skógurinn sem uppspretta hugmynda í listsköpun.
- Hráefni til listsköpunar (viður, textíll unninn úr viði) og hljóðfæragerðar.
- Tjáning.
Lífsleikni.
- Lífsstíll og neysla og þjálfun gagnrýnnar hugsunar gagnvart því.
- Góð umgengni og virðing fyrir auðlindum – endurnýjanlegar vs. óendurnýjanlegar auðlindir.
- Alþjóðavitund.
Náttúrufræði.
- Hvað er tré?
- Trjátegundir – barrtré og lauftré.
- Hringrásir náttúrunnar og mikilvægi þeirra fyrir umhverfið.
- Lífverur í heimabyggð, vistkerfi skóga og auðlindir náttúrunnar.
- Mikilvægi skóga fyrir andrúmsloft, vatnsbúskap, bústað dýra o.fl.
- Mikilvægi umhverfis- og náttúruverndar.
- Mælingar. Efnahvörf og efnaformúlur sem tengjast gróðri og umhverfismálum s.s. ljóstillífun og mengun.
Samfélagsgreinar. Samfélagsfræði, landafræði, saga.
- Áhrif mannlegra athafna á náttúruna.
- Skógar á Íslandi – þekkja nemendur til þeirra?
- Skógar erlendis.
- Skógareyðing og skógrækt í sögulegu samhengi, bæði hér á landi og á heimsvísu.
Stærðfræði.
- Mælingar, útreikningar og samanburður – hæð trjáa, þvermál trjábola, stærð trjákrónu.
- Lestur úr töflum og línuritum.
Upplýsinga- og tæknimennt.
- Upplýsingamennt, nýsköpun, hagnýting þekkingar, hönnun og smíði.
- Þjálfun í að leita upplýsinga á hinum ýmsu vefsíðum.
- Leikni í að vinna verkefni á vef.
- Jákvæð og neikvæð áhrif tækninnar á umhverfið.
- Nýting afurða skóga til smíða.
- Góð nýting hráefna og val hráefna sem hafa ekki skaðleg áhrif á umhverfið.